Fæðugjöf fyrstu dagana eftir aðgerð

Fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð fær barnið eingöngu tæra vökva. Eftir það fær barnið næringarríka fljótandi fæðu sem er sérstaklega útbúin fyrir það. Best er að gefa þessa fæðu úr bolla, skeiðarpela eða stútkönnu en sé notast við teskeið verður að fara sérstaklega varlega. Áríðandi er að skola munninn vel á eftir hverri máltíð með soðnu eða hreinu vatni fyrstu eina til tvær vikurnar eftir aðgerð. Forðast skal allan mjólkurmat, sérstaklega skyr og nýmjólk, fyrstu þrjá til fjóra sólarhringana eftir aðgerð. Maukfæði má barnið fá að þeim tíma liðnum.

Mikilvægt er að byrja að venja barnið á að drekka tæra vökva nokkru áður en kemur að aðgerð til að gera mjólkurleysið bærilegra fyrir það.


SKÁL Í BOTN! Takmarkanir í mataræði í kjölfar aðgerða
eftir Joanne Green

Takmarkanir í mataræði eru hluti af munnhols- og kjálkaaðgerðum. Sumir læknar eru mjög strangir í skilgreiningum sínum á takmörkunum en aðrir eru mildari. Taktu leiðbeiningar skurðlæknisins þíns alltaf bókstaflega, hvað sem einhver annar hefur hugsanlega leyft eða bannað. Þegar kemur að eftirmeðferð skurðaðgerða er góð þumalfingursregla að fara frekar of varlega en ekki.

Eftir aðgerð er flestum foreldrum sagt eitthvað á þessa leið: „Þegar þið farið heim nærist barnið á tærum vökvum. Gefið þykkari vökva í kjölfarið og eftir um það bil viku getið þið fært ykkur yfir í mjúka fæðu.“ Rétt. En hvað þýðir þetta þegar kemur að því að seðja svangt barn í daglega lífinu?

Hvert ofangreindra fræðiheita á sér sína ákveðnu skilgreiningu. Hver einstök fæðugerð er leyfð eða bönnuð af sérstökum ástæðum. Það verður auðveldara eða erfiðara að fylgja hverjum einstökum matarkúr eftir aldri barnsins. (Til dæmis er auðvelt að halda ungabarni á þykkum vökvum. Það er það eina sem það hefur kynnst en eldra barn gæti orðið fjandsamlegt við tilhugsunina um enn eina fljótandi máltíðina.)

TÆRIR VÖKVAR: „Tærir vökvar“ er allt sem þú getur bæði séð í gegnum og hellt. Innifalið í þessari skilgreiningu er vatn, bragðbættir ávaxtadrykkir, eplasafi, trönuberjasafi, goslaust 7-up og tært seyði. Þegar tærir vökvar eru fyrirskipaðir einvörðungu til að koma í veg fyrir uppköst er bragðbætt gelatín einnig innifalið í skilgreiningunni. Þegar um er að ræða eftirmeðferð eftir munnholsaðgerðir myndi með ströngustu skilgreiningunni yfir tæra vökva vera gert ráð fyrir að gelatínið væri óstorknað. Tilgangur mataræðis sem bundið er við tæra vökva er þríþættur. Í fyrsta lagi getur barnið þjáðst af óróleika í maga strax eftir aðgerð í kjölfar svæfingar og vegna blóðs sem það kann að hafa gleypt. Tærir vökvar eru ólíklegri til að valda uppköstum en aðrir vökvar. Í öðru lagi eru tærir vökvar lausir við efni sem kynnu að festast í skorum og afkimum í kring um saumana. Af þessum sökum draga tærir vökvar úr hættu á sýkingum fyrst eftir aðgerð. Í þriðja lagi er hægt að neyta tærra vökva með litlum tunguhreyfingum. Það dregur því úr hvers konar togi á nýja sauma vegna þess sogs og smjatts sem venjulega fylgir því að nærast.

Sum börn eru aðeins látin nærast á tærum vökvum í einn dag en önnur í viku. Þetta fer alfarið eftir lækninum.

ÞYKKIR VÖKVAR: Fyrsta rökrétta skrefið í kjölfar tærra vökva eru þykkari vökvar. Þykkir vökvar eru skilgreindir sem allt sem einfalt er að hella. Önnur skilgreining er sú að þykkir vökvar séu allt sem auðveldlega er hægt að kreista út um gat á pelatúttu (þó að flestir læknar muni ekki leyfa notkun pela við að gefa barninu að borða á þessu stigi). Að lokum er hægt að skilgreina þykka vökva sem allt sem má auðveldlega sjúga í gegnum sogrör. (Enn á ný: Margir læknar vilja ekki að börnin sjúgi á þann hátt sem nauðsynlegur er til að geta notað sogrör.) Flestir þykkir vökvar eru gefnir með sprautu eða dælu um munninn.

Matseðill sem byggist á þykkum vökvum gefur barninu kost á aukinni næringu og fjölbreytni en verndar samt sem áður saumana fyrir sogi og smjatti sem gæti skaðað þá. Þetta kallar líka á mun minni þrýsting frá tungunni þegar kyngt er en þegar um fast fæði er að ræða. Þar sem efni úr þykkum vökvum gætu loðað við saumana er best að skola munninn ávallt með tæru vatni á eftir.

Þegar barnið þitt nærist á þykkum vökvum getur þú notað ímyndunaraflið. Ef um smábarn er að ræða getur þú blandað uppáhaldsbarnamat þess með vatni, mjólk, ávaxtasafa eða þurrmjólkurblöndu þar til hægt er að hella blöndunni. Settu barnamatinn í blandara ef hann inniheldur bita og hakkaðu hann þar til bitarnir eru horfnir og orðnir að vökva. Í raun getur blandarinn opnað nýjan heim af möguleikum til að búa til þykka vökva fyrir barnið þitt. Uppáhaldsmatur þriggja ára gamallar dóttur minnar á meðan hún var á þykkum vökvum var niðursoðin súpa (hvaða bragðtegund sem var) blönduð með krukku af mjólk, hrært vel saman. Dæmi eru um að fólk hafi blandað heila máltíð í blandara og búið til þykka vökvamáltíð. Svo lengi sem hægt er að hella afurðinni, þá gengur hún.

Aðrir vinsælir þykkir vökvar eru meðal annars bráðinn kremís eða krapi, skyndidrykkir og megrunarhristingur.

Margir læknar krefjast þess að sjúklingar þeirra séu á þykku vökvafæði í tvær heilar vikur eftir aðgerð. Sumir krefjast ekki svo langs tíma. Farið ávallt eftir þeim tímasetningum sem læknirinn ykkar gefur ykkur.

MJÚK FÆÐA: Mjúk fæða krefst lágmarkstyggingar og dvelur lágmarkstíma í munninum. Það er auðvelt að tyggja hana og fljótlegt að kyngja henni. Ef henni er ýtt upp í góminn lætur hún auðveldlega undan og maukast. Mjúk fæða er skilgreind sem hvað það sem auðveldlega má þrýsta gaffli í gegnum. Dæmi um mjúka fæðu eru mauksoðnar gulrætur, kartöflumús og pasta sem soðið er langt fram yfir lystuga stigið.

Megnið af barnamat, fyrir utan barnakökur og kex og aðra harða fæðu, fellur undir skilgreiningar um mjúka fæðu. Búðingar, storknað gelatín, jógúrt með ávöxtum (án múslís) og mjúkur en frosinn ís falla líka undir þessa skilgreiningu. Enn og aftur getur blandari breytt nánast hvaða fæðu sem er í mjúka fæðu. Þótt að útlitið verði ef til vill ekki jafn girnilegt og maður myndi vilja hafa það, þá er bragðið nánast hið sama. Blandaður matur sem hægt er að borða með skeið er mjúk fæða. Heitur kornmatur er einnig mjúk fæða. Prófið líka að blanda köldum kornmat, sykri og mjólk og hita í örbylgjuofni. Börnin mín elska þetta sem tilbreytingu við annan heitan kornmat – jafnvel þótt þau séu ekki á takmörkuðu fæði.

Það er áríðandi að muna að þetta mataræði er fyrirskipað til að auka bata barnsins eins og hægt er. Þótt erfitt geti reynst að framfylgja ráðlögðu mataræði, þá er ekki um að ræða breytt mataræði til frambúðar. Það er aðeins tímabundið. Að „svindla“ á mataræðinu er að stofna batanum í hættu. Það gæti valdið sýkingum, ígerð og viðbótaraðgerðum í framtíðinni.

Læknirinn ykkar hefur gildar ástæður fyrir því að fara fram á stranga stjórn á mataræði. Fylgið leiðbeiningum hans og þið og barnið ykkar verðið hamingjusamari fyrir vikið.

Rétt er að forðast mjólkurmat fyrstu dagana eftir gómaðgerðir og þá sérstaklega þykkari afurðir eins og skyr. Áríðandi er að skola munninn vel á eftir hverri máltíð með soðnu eða hreinu vatni fyrstu eina til tvær vikurnar eftir aðgerð. Skolun af þessu tagi getur verið gott að framkvæma með sprautu.

Hafið ávallt í huga að varúð við fæðugjöf og strangt eftirlit með barninu fyrstu dagana eftir aðgerð dregur úr líkum á að saumar rifni upp og endurtaka þurfi aðgerðina. Fylgið leiðbeiningum læknisins varðandi val á fæðu og aðra þætti í umönnun barnsins.

Fara efst á síðu


NÆRING BARNA MEÐ SKARÐ

Algengt er að börn með skarð í vör og/eða góm geti ekki tekið brjóst. Flestar mæður reyna þó að fá barn sitt til að taka brjóst en margar þeirra verða fyrir miklum vonbrigðum þegar slíkt tekst ekki og telja sér jafnvel vera hafnað. Ekki hjálpar til þegar ættingjar og vinir leggja ofuráherslu á áframhaldandi tilraunir af þessu tagi. Ástæður þess að barnið getur ekki tekið brjóst eru að það getur ekki sogið vegna þess að gómurinn er opinn og loft lekur um skarðið og kemur í veg fyrir að nægilegt sog myndist. Ef barnið er aðeins með skarð í vör má í stöku tilfellum hjálpa því til að sjúga með því að leggja fingur yfir skarðið til að loka fyrir loftlekann eða hagræða brjóstinu þannig að það loki fyrir skarðið. Margir kostir geta fylgt slíkri brjóstagjöf en hún getur jafnframt reynt mikið bæði á barnið og móðurina. Rétt er að leggja sérstaka áherslu á að mæður ofreyni sig ekki andlega við slíkar tilraunir og viðurkenni að nota verði aðrar aðferðir til að næra barnið.

Fara efst á síðu


Hjálpartæki við fæðugjöf

Þrátt fyrir þetta er gott að börnin fái móðurmjólk eins og önnur börn en ýmis hjálpartæki eru til þannig að af því megi verða. Til eru sérstakar mjaltavélar sem mæður geta notað til að mjólka sig. Það er hins vegar mikil vinna og ekki hafa allar mæður orku eða aðstöðu til að halda slíkri framleiðslu til streitu. Það er því rétt að ítreka að þurrmjólk sú sem framleidd er sérstaklega fyrir ungabörn er mjög góður kostur og inniheldur öll nauðsynleg næringarefni. Yfirleitt er ekki unnt að nota venjulega pela til að gefa barni með skarð að drekka af sömu ástæðum og það getur ekki tekið brjóst. Þess í stað eru til nokkrar gerðir af sérstökum pelum til að auðvelda fæðugjöf. Algengasta tegundin eru svo nefndir skeiðarpelar þar sem nokkurs konar skeið kemur í stað hefðbundinnar túttu. Með þessum pelum er mjólkin látin renna upp í barnið og það kyngir henni, en þessi börn kyngja eðlilega. Þá eru einnig fáanlegir pumpupelar, þar sem túttan er stór og þannig útbúin að sá sem gefur barninu að drekka kreistir túttuna á sérstakan máta og dælir mjólkinni þannig upp í barnið.

 

Pelinn á miðri myndinni reyndist mörgum vel þótt gamaldags sé. Hann mun hins vegar ekki vera lengur á markaðnum.

Pelinn lengst til vinstri er Medela-skeiðarpeli með mjúkri skeið, en sá til hægri er svokallaður pumpupeli. Medela-pelarnir fást meðal annars hjá Móðurást, Hamraborg 7 í Kópavogi.

Fara efst á síðu


Látið barnið ropa reglulega

Börn með skarð gleypa oft meira loft en önnur þegar þau drekka og því er mikilvægt að láta þau ropa öðru hverju meðan á fæðugjöfinni stendur. Þá kemur oft einhver mjólk og önnur fæða út um nefið meðan á fæðugjöf stendur en ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af því. Þegar aðgerðir hafa verið gerðar á góm dregur yfirleitt verulega úr þessu.

Mikilvægt er að hafa barnið sitjandi eða hálfsitjandi í fanginu á meðan því er gefið. Þetta er gert til að vökvi renni síður inn í hlustirnar og valdi vandræðum þar. Yfirleitt gengur vel að gefa barni með skarð að drekka og borða en þeir sem annast barnið verða sjálfir að finna þá aðferð sem best gefst því að mismunandi er hvaða aðferð og hjálpartæki henta hverju barni best.

Ef barninu svelgist mikið á er líklegt að rennslið úr pelanum sé of mikið og hvíla þurfi barnið milli sopa. Ef það tekur barnið langan tíma að nærast, 30 til 40 mínútur í senn, þarf að gæta að því hvað betur megi fara. Barnið þreytist þá um of, fær ekki nóg og þyngist illa. Stundum má bæta úr þessu með mjög einföldum hætti, til dæmis með því að stækka op túttunnar.

Fara efst á síðu


Fastari fæða

Þegar kemur að því að gefa barninu maukfæði er gott að byrja með því að þynna það með vatni, mjólk eða ávaxtasafa og hugsanlega gefa það úr skeiðarpela. Gott getur verið að setja kjöt eða fisk, kartöflur og annað grænmeti í matvinnsluvél og þynna með soðinu eða öðrum vökva þannig að úr verði þunnt mauk. Síðan má þykkja maukið smám saman og nota skeið. Rétt er þó að enda allar máltíðir með því að skola góminn með tærum vökva (vatni). Áhrifaríkast er að nota handhæga sprautu en einnig er hægt að setja vatn í pela eða stútkönnu. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrstu vikurnar eftir aðgerðir. Athugið að í engum tilfellum má gefa barni mjólkurmat í fáeina daga eftir aðgerðir þar sem mjólkurvörur geta valdið ígerð í sárum og eyðilagt árangur aðgerða. Gott er að láta að minnsta kosti fjóra daga líða eftir aðgerð án þess að barnið fái mjólkurvörur. Um það bil tveimur vikum eftir aðgerð getur barnið nærst á sama hátt og önnur börn. Eftir aðgerð ætti að halda börnum frá því að matast sjálf þar sem þau gætu stungið skeið eða öðrum aðskotahlut í sárið og rifið upp sauma.

Fara efst á síðu


Snuð og sogþörf

Börn með skarð í vör og góm hafa sömu sogþörf og önnur börn. Þau geta yfirleitt tekið snuð þótt þeim haldist misvel á þeim. Hins vegar getur verið varhugavert að gefa þeim snuð fyrst eftir aðgerðir þar sem snuðið getur spillt árangri aðgerðanna meðan sárin eru að gróa. Til að fullnægja sogþörf barnanna á þessu tímabili má nota grisju sem bleytt er í sæfðu vatni og brotin saman í lítinn vöndul.

Fara efst á síðu


Flúortöflur

Þessum börnum er eins og öðrum mikilvægt að fæðan innihaldi öll þau næringarefni sem þau þurfa á að halda en auk þess er mikilvægt að huga vel að tannhirðu þeirra og gefa þeim flúor. Flúortöflur fást afhentar endurgjaldslaust á heilsugæslustöðvum.

Hver og einn verður að finna þá aðferð og þau hjálpartæki sem henta best til að næra sitt barn því að ekki hentar sama aðferðin öllum.

Fara efst á síðu