Hvernig er best að búa sig undir spítalavistina?

Yfirleitt dvelur annað foreldrið á spítalanum meðan barnið liggur inni. Það er því mikilvægt að fólk hafi með sér ýmsa nauðsynjahluti, eins og snyrtidót, föt til skiptanna, lesefni og aðra dægrastyttingu. Þá getur verið gott að hafa með sér nesti, sem hita má í örbylgjuofni sem til staðar er á deildinni. Einnig er hægt að fá keyptan mat í matsal Landspítalans og á kaffistofu Kvenfélagsins Hringsins. Þá getur verið gott að hafa með sér smápeninga í sjálfsala.

Mikil breyting hefur orðið á allri aðstöðu barna, foreldra og starfsfólks eftir að nýi Barnaspítalinn var tekinn í notkun. Nánari upplýsingar um aðstöðuna er að finna á heimasíðu Barnaspítala Hringsins.

Fara efst á síðu


Undirbúningur aðgerðar

Mikilvægt er að undirbúa barnið vel fyrir aðgerð. Sé þetta gert á afslappaðan og jákvæðan hátt verður spítalalegan og aðgerðin sjálf miklu minna mál en ella fyrir barnið. Útskýra má fyrir barninu (og foreldrum) hvernig ferlið gengur fyrir sig, sýna því svæfingarmaska og leyfa því að æfa sig á því að anda í hann. Mikilvægt er að foreldrar séu fræddir um gang mála því að rólegir foreldrar eru forsenda þess að barnið sé öruggt og rólegt. Hérlendis er foreldrum boðið að vera hjá börnum sínum í undirbúningsherbergi á skurðstofugangi. Þar fá börnin forlyfjagjöf í endaþarm og innan skamms tíma eru þau orðin kærulaus og sátt við að yfirgefa foreldra sína í fylgd hjúkrunarliðs. Á meðan lyfin eru að virka geta börnin skoðað dót og bækur sem komið hefur verið fyrir í sérstöku barnahorni í undirbúningsherberginu. Börnin eru oftast rólegri með foreldrana hjá sér og eiga auðveldara með að sofna. Talið er að sálarlegt áfall og álag til lengri tíma litið verði minna fyrir börnin á þennan hátt.

Eitt af því sem gott er að hafa í huga fyrir aðgerð er að halda stungum í lágmarki. Ef þær eru nauðsynlegar ætti að bera EMLA-krem, sem er staðdeyfilyf, á stungustaðinn 45 til 60 mínútum fyrir stunguna. Barnið finnur þá fyrst og fremst fyrir þrýstingi í stað sársauka. Þegar komið er með barn í innritun setur hjúkrunarfræðingur kremið á barnið. Blóðprufa er tekin þegar kremið hefur náð að virka. Foreldrar fá leiðsögn um notkun EMLA-krems og fá það með sér heim til að setja á barnið að morgni aðgerðardags.

Fara efst á síðu


Leiðbeiningar varðandi undirbúning fyrir svæfingu/aðgerð

Barnið skal vera fastandi frá kl. 24:00 kvöldið fyrir aðgerðardaginn. Það þýðir að ekki má fá fasta fæðu eftir þann tíma en barnið má fá tæran vökva til kl. 04:00. Brjóstamjólk er einnig leyfileg til kl. 04:00. Tærir vökvar eru einungis vatn, sykurvatn eða eplasafi.

Fasta þessi er mikilvæg til að fyrirbyggja hættu á uppköstum meðan á svæfingu stendur sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir barnið.

Baða þarf barnið að morgni aðgerðardags. Notið milda sápu og klæðið barnið í hrein föt að baði loknu. Ekki skal leyfa barni að bursta tennur eða skola munn þegar það er fastandi þar sem það vill gleypa vatnið.

Barnið þarf ekki að koma með náttföt eða nærföt að heiman þar sem deildin útvegar slíkt. Aðeins snyrtivörur, náttslopp og inniskó.

Munið eftir að taka með uppáhalds tuskudýr sem barnið getur haft með sér á skurðstofuna. Barnið má einnig koma með tölvuspil eða vasadiskó.

Leyfilegt er að nota GSM á barnadeildinni.

Spyrjið barnið heima um hverjar hugmyndir þess eru um spítalann og aðgerðina. Börn eiga það gjarnan til að ímynda sér það versta og því er mikilvægt að leiðrétta allan þann misskilning sem upp getur komið hjá barninu heima fyrir aðgerðina. Útskýrið fyrir barninu á því máli sem það skilur best.

Ef tími aðgerðar liggur ekki fyrir á innskriftardaginn, hringið í deildina kvöldið áður og spyrjið hvenær þið eigið að mæta á aðgerðardaginn.

Athugið!

Mæta skal með barnið stunvíslega á deildina að morgni aðgerðardags.

Að morgni aðgerðardags fær barnið deyfikrem (EMLA-plástur) á handarbak. Ef þið hafið fengið plásturinn meðferðis heim, er hann settur á handarbak barnsins þar sem æð sést undir samkvæmt leiðbeiningum frá svæfingalækni/hjúkrunarfræðingi. Krem þetta staðdeyfir húðina þannig að hæft verði að setja plastnálina í handarbak barnsins án þess að barnið finni til og þarf plásturinn að vera á húðinni í a.m.k. 1 klst. til að ná tilætlaðri verkun.

Lyfjaforgjöf (tafla undir tungu) fá eldri börn á legudeild en þau yngri fá (lyf í endaþarminn) á móttökuherbergi svæfingardeildarinnar. Lyf þetta hefur þau áhrif að barnið verður mjög rólegt og verður ekki fyrir kvíða þegar að aðgerð kemur.

Mikilvægt er aðforeldri eða náinn aðstandandi komi með barninu og sé til staðar á aðgerðardeginum til að:

Vera hjá barninu þegar það er undirbúið fyrir aðgerð.
Fylgja barninu á móttöku á aðgerðargangi þar sem starfsfólk á svæfingardeild tekur við því.
Bíða á legudeild barnsins á meðan svæfing/aðgerð stendur yfir.
Fara á vöknunarherbergi og vera hjá barninu þegar það vaknar upp eftir svæfingu.
Fylgja barninu aftur á deild og vera hjá því þar til það hefur jafnað sig.

Meðan á svæfingu/aðgerð stendur bíður foreldri á deild barnsins. Boðið er upp á kaffi meðan á bið stendur. Foreldri getur einnig farið í matsal spítala eða komið með nesti með sér. Á deildinni er ískápur og örbylgjuofn ætlaður foreldrum.

Sé eitthvað óljóst meðan á dvöl barnsins stendur og fyrir heimferð þess t.d. ef óskað er frekari leiðbeinginga eða einhverjum spurningum er ósvarað, skal ekki hika við að leita til starfsfólks deildarinnar.

Þá er gott að skrifa niður það sem óskað er svara við, annars vill það oft gleymast.

Fara efst á síðu


Útskriftarleiðbeiningar eftir aðgerð á góm eða vör

Fæði eftir útskrift:

Í 2 vikur eftir aðgerð má barnið ekki fá fæðu sem inniheldur harðar þurrar agnir. Gefið því barninu sams konar fæði og það fékk á sjúkrahúsinu fram að útskrift, rakan mat og maukfæði. Í þessar 2 vikur á að skola munn barnsins með soðnu vatni eftir hverja máltíð. Eldri börn noti munnskol.

Snuð/peli/brjóstagjöf:

Barnið má ekki sjúga snuð, pelatúttu eða leggja á brjóst í lágmark 7 daga eftir aðgerð. Gefa má af skeiðarpela/stútkönnu í samráði við lækni.

Tími með spelkur:

Barnið þarf að nota spelkur í 2 vikur eftir aðgerð. Til þess að handleggirnir fái hreyfingu skal taka barnið úr spelkunum tvisvar á dag t.d. kvölds og morgna og þá aðra spelkuna í einu undir góðu eftirliti. Mikilvægt er að hreyfa hendur barnsins markvisst þegar barnið er spelkulaust.

Dagvistun/skólaganga:

Er ekki æskileg fyrstu vikuna eftir aðgerð eða eftir samkomulagi.

Annað:

Bað er leyfilegt undir eftirliti.

Fyrstu 2 vikurnar eftir aðgerð þarf að hafa gott eftirlit með barninu og sjá til þess að það setji ekki hendur, leikföng eða annað í munninn.

Göngudeild/eftirlit:

Barnið skal mæta til eftirlits á göngudeild eftir 7-10 daga eða eftir samkomulagi.

Komi eitthvað upp á, þá hafið samband við barnadeildina.

Fara efst á síðu